Djammi, Prófasti,
Herjólfsdal, áfengi, Marblettum og dansi......
Þá er ég samt Sykurpabbi.
Var að koma heim að Þjóðhátíð 2006 og eins og alltaf þá var hún
snilldin ein. Tók held ég eina mynd....
Komum um 3 leytið á fimmtudeginum og fórum heim til Pabba og aðeins
að koma okkur fyrir og fórum svo að drekka brennivín sem aldrei
fyrr. Satt að segja þá get ég eiginlega ekki hugsað hvar ég
var á fimmtudeginum því það er aðeins og langt fyrir mig að hugsa
það núna. Barasta man það ekki. Hux
hux.......
Heyrðu Jú! Byrjuðum á að fara í mat til Múttu á Illugagötuna
og var það sjúklega góður kjúklingur!

Átum yfir okkur þar
og fórum svo heim til mín og héldum stelpuparty!

Ég og
Lucy buðum Sunnu, Sillu, Rakel, Þórey, Margréti, Thelmu (frænka
Sunnu) og Svo voru Nonni og Gísli þarna líka í fýlu. Því
þetta var auðvitað Stelpuparty og þeir máttu ekkert vera með.

En eftir mikla drykkju heima var haldið á barinu down town,
Drífanda, Lundan og svo auðvitað Prófastinn. Djamm til 08:00
að mig minnir.
Föstudagurinn var svo erfiður til að byrja með en þá var þynnkan að
yfirtaka alla á heimilinu og fyrstu soparnir mjög erfiðir. En
áfram héldum við.... Eftir einhverja stofusetu og spjall
heima fórum við til mömmu í Lundaveislu. (Namm) Og beint þaðan
niður í Dal að sjálfsögðu. Mér finnst rigningin góð!
Að sjálfsögðu gaman..... Djamm til 11 eða 12.
Laugardagurinn var versta þynnka sem ég hef upplifað lengi... en þá
þurfti bara að vinna bug á því og byrja ekki seinna en NÚNA!
Ég og Lotta í klikkuðum fýling heim hjá pabba í brjáluðu party, en
reyndar vorum við bara 2.
Fórum svo niður í dal og skemmtum okkur konunglega fram undir
dag... var komin heim um 15 eða 16. Tekið vel á því þar...
hélt svo teiti heima með Lottu, Vigdísi, Eini, Sif og Al. Það
stóð yfir í nokkra klst. þangað til sumir voru farnir að gera of
mikið úr fallegum lögum.

Samt fyndið... Svo þegar kl. var að
verða um 14 eða e-h þá fórum við á PIZZA 67 en þá gafst ég upp og
skildi liðið eftir þar. Sofnaði (þótt erfitt væri) í 2 klst.
og þetta gekk sama hringinn. Bara Sunnudagurinn eftir og hann
var frábær. Brekkusöngur og flugeldar og árni.
Endaði með Prófastinum auðvitað og lengi var það. Er að
farast í hverjum einasta vöðva í líkamanum eftir trylltu dansana
sem ég steig með Lottu á Prófastinum og Dalnum en SAMT tókum við
mánudaginn líka!

Ég er frekar hissa á mér eftir þetta allt saman bara.... 5 dagar í
röð og lítið sofið. Er að fara með mömmu til Akureyrar í nótt
og ætla ég að slappa af og læra og koma mér í samband
aftur.
Það má segja að hátíðinni var tekið vel þetta árið.
Megið bara kalla mig Sykurpabba...
langur akstur bíður mín.
Svala er úti
CHAO!